is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1244

Titill: 
  • "Ég vil fá verkefni sem fá heilann til að hugsa" : bráðgerir nemendur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er viðtalsrannsókn þar sem hálf-opin viðtöl voru tekin við tvo
    bráðgera nemendur og foreldra þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að fá fram
    viðhorf bráðgerra nemenda og foreldra þeirra til námshæfni, áhrifa uppeldis og úrræða
    skólans í málefnum bráðgerra barna.
    Borin var saman vitneskja sem fengin var í viðtölunum við þau úrræði sem
    fram koma í útgefnum skýrslum frá Menntamálaráðuneyti 2002 og Fræðslumiðstöð
    Reykjavíkur 2004, ásamt annarri vitneskju á fræðasviðinu.
    Niðurstöður rannsóknarinnar gefa nokkrar vísbendingar um að ekki virðist
    vera tekið nægjanlegt tillit til námshæfni nemenda við skipulagningu kennslu.
    Bráðgeru nemendurnir sem þátt tóku í rannsókninni hafa sjaldan unnið annars konar
    eða meira krefjandi verkefni en bekkjarfélagarnir. Nemendurnir töldu að of mikill tími
    í skólanum færi í að sitja og gera ekki neitt þegar þeir höfðu lokið verkefnum langt á
    undan bekkjarfélögum. Bæði börnin og foreldrar þeirra töldu að þau fengju of fá
    tækifæri til að takast á við nám við hæfi. Ekki virtist mótuð stefna í málefnum
    bráðgerra nemenda í þeim skólum sem börnin gengu í. Bæði börnin telja foreldra sína
    aðlaðandi fyrirmyndir og að uppeldisaðferðir þeirra hafi ýtt undir góðan námsárangur.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1244


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Katrín Fjóla Guðmundsdóttir_heild.pdf530.29 kBOpinnÉg vil fá - heildPDFSkoða/Opna