is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12461

Titill: 
  • Skyndileg hjartaáföll hjá íþróttafólki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Skyndilegt hjartaáfall hjá íþróttafólki er sorglegur atburður sem aukist hefur á undanförnum árum. Engu að síður er um sjaldgæfan atburð að ræða þar sem tíðnin er um 0,5-2/100.000 á ári. Ýmsar ástæður geta legið á bak við skyndilegt hjartaáfall en í um 90% tilvika er það af völdum undirliggjandi hjartagalla sem oft er ekki vitað um. Auk þess getur ofþjálfun og neysla ólölegra lyfja orsakað skemmd á hjartavöðva sem getur endað með hjartaáfalli. Hjartaáfallið getur því verið fyrsta vísbending um að hjartað starfi ekki rétt. Sýnt hefur verið fram á að skimun fyrir áhættuþáttum getur lækkað tíðni hjartaáfalla til muna. Víða erlendis hafa verið gefnar út reglur eða leiðbeiningar um skimun hjá íþróttafólki, en því er ekki til að dreifa hér á landi. KSÍ hefur þó sett reglur sem gera ráð fyrir skimun hjá leikmönnum í efstu deild karla í knattspyrnu, þeim reglum hefur ekki verið fylgt eftir.
    Lykilorð; hjartaáfall, hjartagallar, skyndidauði, ofþjálfun, skimun, íþróttir, íþróttafólk.

Samþykkt: 
  • 2.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12461


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
egill_bjornsson.pdf858 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna