is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12462

Titill: 
  • Hreyfing er skemmtileg fyrir börn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þetta lokaverkefni í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík er hagnýtt verkefni sem inniheldur fræðilega umfjöllun um hreyfingu barna, hreyfingarleysi, áhrif og afleiðingar þess. Hreyfing og gott mataræði skiptir börnin okkar miklu máli svo þeim líði vel bæði andlega og líkamlega. Foreldrar og leikskólar bera fyrst og fremst ábyrgð á góðu og eðlilegu mataræði og hreyfingu barna og er því mikilvægt að þessir félagsmótunaraðilar séu vel upplýstir um þessa þætti. Fræðilegi hlutinn skiptist í fimm kafla og fleiri undirkafla. Þar er fjallað um mikilvægi hreyfingar barna og hvaða áhrif hreyfing hefur á andlega, líkamlega og félagslega þætti. Einnig verður fjallað um hreyfingarleysi og helstu áhrifaþætti þess, mataræði leikskólabarna, hreyfiþroska og það hver ber ábyrgð á þessum þáttum þegar um börn á leikskólaaldri er að ræða.
    Síðasti hluti lokaverkefnisins er ævintýrabók skreytt með myndum svo að boðskapurinn megi skili sér til barnanna um að hreyfing sé skemmtileg. Ævintýrabókin heitir Hreyfing er skemmtileg fyrir börn. Í viðauka verkefnisins eru tillögur að skemmtilegum leikjum fyrir börn á leikskólaaldri sem foreldrar og leikskólar geta nýtt sér.

Samþykkt: 
  • 2.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12462


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gerda jóns.pdf2.46 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna