is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12473

Titill: 
  • Áfengisneysla knattspyrnumanna á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknin fjallar um áfengisneyslu knattspyrnumanna á Íslandi og var hún unnin vorið 2012. Spurningalisti var sendur á leikmenn úr 24 liðum í efstu þremur deildunum sem spiluðu á Íslandsmótinu í knattspyrnu 2011. Af þeim svöruðu 293 leikmenn spurningalistanum. Svarhlutfall var 59%. Niðurstöðurnar sýna að 86% þátttakendanna höfðu drukkið áfengi. Rúmlega helmingur þátttakenda hafði drukkið minnst einn áfengan drykk einu sinni eða oftar í mánuði á síðastliðnum 12 mánuðum en 39% drukkið minnst fimm áfenga drykki einu sinni eða oftar á sama tímabili. Töluverður munur var á áfengisneyslu milli keppnistímabils og hvíldartímabilsins, þ.e. mun meira var drukkið á hvíldartímabilinu, eða 11% á móti 59% hjá þátttakendum úr úrvalsdeildinni. Helmingur þátttakenda úr annarri deild drukku minnst fimm áfenga drykki einu sinni eða oftar í mánuði á keppnistímabilinu. Rúmur þriðjungur þátttakenda hafði ekki getað munað einu sinni eða oftar á síðustu 12 mánuðum hvað gerðist kvöldið áður vegna þess þeir höfðu drukkið áfengi. Tæplega fjórðungur þátttakenda gæti átt við áfengisvandamál að stríða samkvæmt CAGE spurningalistanum og marktækt fleiri þátttakendur úr fyrstu og annarri deild gætu átt við vandamál að stríða miðað við þátttakendur úr úrvalsdeild.

Samþykkt: 
  • 2.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12473


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áfengisneysla knattspyrnumanna á Íslandi.pdf811.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Brynjar Forsíða.pdf39.41 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna