Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12476
Í þessu lokaverkefni er gerð grein fyrir rannsókn á hreyfiþroska leikskólabarna. Athugað er hvort skipulögð hreyfing bæði í leikskólum og utan leikskóla hafi jákvæð áhrif á hreyfifærni barnanna. MABC-2 hreyfiþroskaprófið var lagt fyrir 5-6 ára börn á fjórum heilsuleikskólum hér á landi. Einnig voru sendir spurningarlistar til foreldra barnanna sem tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að langflest börnin eða 92,5 % voru með eðlilega hreyfifærni. Meðaltal úrtaksins er hærra en meðaltal úr umferðaljósakerfinu sem byggir á rannsóknum á þúsundum barna. Þessar niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að skipulögð hreyfing hafi jákvæð áhrif á hreyfifærni barna. Einnig sýndu niðurstöður að munur var á hreyfifærni barna eftir því hvaða íþrótt þau stunduðu. Hreyfifærni barnanna var betri á því sviði sem einkennir þá íþrótt sem þau stunduðu. Þessar niðurstöður benda til þess að hægt sé að þjálfa hreyfifærni barna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 185.42 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |