is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1247

Titill: 
  • Margt er að læra og mörgu að sinna : nýbrautskráðir kennarar á fyrsta starfsári; reynsla þeirra og líðan
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra
    grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að
    kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsferils síns ásamt
    því að leita álits þeirra á því hvernig þeir telja kennaranám sitt hafa búið sig undir starfið.
    Átta nýbrautskráðir kennarar frá Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands tóku
    þátt í rannsókninni. Rannsóknin var eigindleg og voru tekin þrjú viðtöl við hvern
    þátttakanda. Meginniðurstöður hennar gefa vísbendingar um að nýliðar líti svo á að
    kennaramenntunin sé aðeins grunnmenntun kennara eða fyrsta skrefið að því að verða
    fagmenn í starfinu. Vísbendingar eru um að til að nýjum kennurum vegni vel þurfi þeir á
    mikilli leiðsögn og stuðningi að halda þegar út í starfið er komið, leiðsögn sem nær bæði
    til faglegra og hagnýtra þátta starfsins en einnig handleiðslu sem styður þá og byggir þá
    upp gegn álagi og streitu í starfi. Í rannsókninni kemur fram að móttökur og leiðsögn
    nýrra kennara virðast ómarkvissar og framkvæmd því oft fremur tilviljanakennd.
    Rannsóknin sýnir að á fyrsta starfsári virðast nýliðar helst hagnýta þá þætti úr
    kennaranámi sem þeir geta yfirfært beint inn í kennslu sína. Einnig virðast þeir í upphafi
    starfsferils uppteknir af því sem þeir telja að vanti í námið fremur en hvað það er sem
    nýtist þeim vel. Fram kemur að margt sem tilheyrir hlutverki og starfssviði kennarans
    virðist koma þeim á óvart og þeir ekki búnir undir í náminu og varpar rannsóknin ljósi á
    marga af þessum þáttum. Á grundvelli rannsóknarinnar eru settar fram hugmyndir að
    úrlausnum er varða móttöku og leiðsögn kennara á fyrsta starfsári.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1247


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
María Steingrímsdóttir_e.pdf88.65 kBOpinnMargt er að - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
María Steingrímsdóttir_h.pdf147.75 kBOpinnMargt er að - heimildaskráPDFSkoða/Opna
María Steingrímsdóttir_heild.pdf729.1 kBOpinnMargt er að - heildPDFSkoða/Opna
María Steingrímsdóttir_u.pdf86.68 kBOpinnMargt er að - útdrátturPDFSkoða/Opna