Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1247
Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu og upplifun nýbrautskráðra
grunnskólakennara á fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Áhersla var lögð á að
kanna hvernig þeir upplifa líðan, móttökur og stuðning í upphafi starfsferils síns ásamt
því að leita álits þeirra á því hvernig þeir telja kennaranám sitt hafa búið sig undir starfið.
Átta nýbrautskráðir kennarar frá Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands tóku
þátt í rannsókninni. Rannsóknin var eigindleg og voru tekin þrjú viðtöl við hvern
þátttakanda. Meginniðurstöður hennar gefa vísbendingar um að nýliðar líti svo á að
kennaramenntunin sé aðeins grunnmenntun kennara eða fyrsta skrefið að því að verða
fagmenn í starfinu. Vísbendingar eru um að til að nýjum kennurum vegni vel þurfi þeir á
mikilli leiðsögn og stuðningi að halda þegar út í starfið er komið, leiðsögn sem nær bæði
til faglegra og hagnýtra þátta starfsins en einnig handleiðslu sem styður þá og byggir þá
upp gegn álagi og streitu í starfi. Í rannsókninni kemur fram að móttökur og leiðsögn
nýrra kennara virðast ómarkvissar og framkvæmd því oft fremur tilviljanakennd.
Rannsóknin sýnir að á fyrsta starfsári virðast nýliðar helst hagnýta þá þætti úr
kennaranámi sem þeir geta yfirfært beint inn í kennslu sína. Einnig virðast þeir í upphafi
starfsferils uppteknir af því sem þeir telja að vanti í námið fremur en hvað það er sem
nýtist þeim vel. Fram kemur að margt sem tilheyrir hlutverki og starfssviði kennarans
virðist koma þeim á óvart og þeir ekki búnir undir í náminu og varpar rannsóknin ljósi á
marga af þessum þáttum. Á grundvelli rannsóknarinnar eru settar fram hugmyndir að
úrlausnum er varða móttöku og leiðsögn kennara á fyrsta starfsári.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
María Steingrímsdóttir_e.pdf | 88.65 kB | Opinn | Margt er að - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
María Steingrímsdóttir_h.pdf | 147.75 kB | Opinn | Margt er að - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
María Steingrímsdóttir_heild.pdf | 729.1 kB | Opinn | Margt er að - heild | Skoða/Opna | |
María Steingrímsdóttir_u.pdf | 86.68 kB | Opinn | Margt er að - útdráttur | Skoða/Opna |