Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12522
Í greininni er varpað ljósi á starf og viðfangsefni millistjórnenda í opinberri þjónustustarfsemi. Markmið greinarinnar er að auka skilning á millistjórnenda-starfinu þegar tekist er á við nýtt starf. Athyglinni er sérstaklega beint að náms-/ eða lærdómsferlinu sem millistjórnendurnir fara í gegn um. Sömuleiðis er sjónum beint að þeim skilyrðum í vinnuumhverfinu sem hafa áhrif á lærdóm þeirra. Gagnaöflun var með hálfskipulögðum ítarlegum einstaklingsviðtölum við þrjá millistjórnendur og spurningalistakönnun meðal nær allra annarra millistjórnenda í hinni nýju þjónustustarfsemi til að gera myndina skýrari. Helstu niðurstöður staðfesta mikil-vægi óformlegra námsleiða við starfsþróun millistjórnenda. Í starfinu reynir hvað mest á altæka (meta) færni eins og samskiptafærni, færni í að greina og skipuleggja og forystufærni. Millistjórnendurnir þróa raunfærni sína fyrst og fremst með því að framkvæma og ígrunda atburði, athafnir og viðbrögð. Formlegar námsleiðir s.s. námskeið hafa mun minni þýðingu fyrir þá. Áskoranir og fjölbreytileiki starfs og fyrirtækjamenningin hafa mikla þýðingu fyrir vinnustaðinn sem ákjósanlegan vettvang náms og starfsþróunar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
11.Starfsthroun_millistjornenda_opinber_starfsemi.pdf | 370.51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |