is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12530

Titill: 
  • Arðsemi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja
Útgáfa: 
  • Mars 2012
Útdráttur: 
  • Fjöldi erlendra ferðamanna hefur aukist ár frá ári og ferðaþjónustan er ein af mikilvægustu útflutningsgreinum þjóðarinnar. En hver er arðsemi fyrirtækja í greininni? Höfundar ákváðu að beina athyglinni að árunum 2004 til 2007 en þau einkenndust af miklum uppgangi í íslensku efnahagslífi. Kennitölurnar arðsemi eigin fjár, arðsemi eigna, hagnaðarhlutfall og veltuhraði eigna voru reiknaðar út fyrir helstu fyrirtækjahópa innan ferðaþjónustunnar. Við útreikningana var notast við upplýsingar sem Hagstofa Íslands hefur unnið upp úr ársreikningum fyrirtækja. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að arðsemi helstu fyrirtækjahópa innan ferðaþjónustunnar hafi verið lítil á uppgangsárunum 2004-2007 og að hún hafi verið mun minni en arðsemi annarra íslenskra fyrirtækja að meðaltali á sama tímabili.

Birtist í: 
  • Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands 23. mars 2012
ISSN: 
  • 1670-8288
ISBN: 
  • 978-9979-9933-3-9
Samþykkt: 
  • 4.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12530


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
7.Ardsemi_islenskra_ferdathjonustufyrirtaekja.pdf346.47 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna