Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12532
Í þessari grein er farið yfir fyrstu skref við þróun mælitækis fyrir fjármálahvatvísi. Eftir forprófun og atriðagreiningu var tuttugu atriða listi lagður fyrir 216 nema í viðskiptafræði. Þar sem niðurstöður þáttagreiningar voru ekki skýrar og bæði Kaiser viðmiðin og skriðupróf bentu til fleirri en eins þáttar var notast við samhliða greiningu. Niðurstöður samhliða greiningar bentu til eins þáttar sem skýrir um fjörtíu prósent breytileikans. Rædd eru næstu skref sem meðal annars fela í sér könnun á ytra réttmæti mælitækisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
19.Fjarmalahvatvisi.pdf | 306.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |