Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12570
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að fjalla um læsi í leikskólanum, hvernig læsi þróast hjá börnum og hvaða námsaðferðir innan leikskólans er verið að nota. Lagt er upp með rannsóknarspurninguna: Hvað gerum við í leikskólanum til að örva læsi?
Ritgerðin inniheldur umfjöllun um leikskólann á Íslandi og þá hvernig þróun hans hefur orðið í þessa veru. Þáttur nokkurra fræðimanna sem koma að leikskólanum er kynntur. Leikurinn og áhrifamáttur hans er skoðaður með tilliti til læsis. Gerð er grein fyrir helstu hugtökum og þeim þáttum í lestrarferlinu sem eru mikilvægir en málþroski, orðaforði og góð hljóðkerfisvitund eru þættir sem skipta miklu máli þegar kemur að lestrarnámi. Lokakaflinn fjallar um læsi í starfi tveggja leikskóla þar sem kynnt er lestrarhvetjandi námsefni sem höfundar hafa notað í sínu starfi í leikskólanum.
Niðurstöður ritgerðarinnar eru einkum þær að leikskólakennarinn þarf að vera vel að sér í þróun læsis til að geta leiðbeint börnunum í gegnum leikinn og að val á námsefni leikskólabarnanna með tilliti til læsis skiptir miklu máli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKARITGERÐ 3 MAÍ.pdf | 642.67 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |