Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1258
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er könnun á sögu- og grenndarvitund unglinga á Dalvík. Grenndarfræði hugtakið er ekki gamalt hugtak hér á Íslandi og hefur því ekki náð að festi sig í sessi í skólum landsins jafnvel þó að ákvæði um slíkt nám sé að finna í Aðalnámskrá Grunnskóla. Mikilvægi grenndarnáms fyrir samfélagið er greinilegt þar sem aukin sjálfsvitund nemenda eykst og næmni og virðing fyrir umhverfi, náttúru og menning landsins.
Töluvert vantar uppá að grenndarvitund unglinga á Dalvík sé nógu góð. Eitthvað þarf að gera til að þetta breytist og er það ábyrgð skólans að hvetja og virkja kennara til að gera betur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
soguoggreind.pdf | 351.5 kB | Opinn | Ungl.Dalvík - heild | Skoða/Opna |