Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12601
Þessi greinargerð fylgir með lokaverkefni mínu til B.Ed – prófs við Háskóla Íslands en ég valdi að gera námsspil í landafræði sem ég kalla Yfir hóla og hæðir. Verkefnið samanstendur af greinargerð um leiki sem kennsluaðferð þar sem farið er í helstu hugmyndir fræðimannanna Armstrongs, Deweys og Piagets, fjölda spurninga, spilaborði og spilareglum. Spilið er spurningaspil þar sem hægt er að keppa sem lið eða sem einstaklingur. Spilið gengur út á að svara spurningum um örnefni Íslands út frá vísbendingaspurningum, stuttum spurningum, myndaspurningum eða orðarugli. Tilgangur spilsins er að nemendur festi í minni staði á Íslandi, hvar þá er að finna og efla áhuga þeirra á landafræði Íslands.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsíða og titilsíða.pdf | 70.99 kB | Opinn | Skoða/Opna | ||
Yfirholaoghaedir.pdf | 2.34 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |