Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12602
Þessi lokaritgerð í grunnskólakennarafræðum fjallar um samþættingu námsgreina og heitir Samþætting námsgreina í skólastarfi ,,Allt er einfaldara þegar það er sett í samhengi”. Ritgerðinni er skipt í þrjá hluta. Fjallað verður um helstu kennismiði samþættrar kennslu og greint frá því hvernig aðalnámsskrá grunnskóla skilgreinir samþættingu og farið í helstu áherslur í almennri kennslu. Ritgerðinni er ætlað að styðja við kennsluverkefnið: Samþætting námsgreina í skólastarfi ,,Skyggnst inn í ævintýri foreldra okkar“ og varpa ljósi á tilurð þess og tilgang. Kennsluverkefnið á vonandi erindi við kennara og því er ætlað að sýna fram á mikilvægi þess að endurskoða almenna kennslu og nýta samþættingu í auknum mæli. Markmið kennsluverkefnisins er að samþætta námsgreinar á skapandi hátt og efla samskipti nemenda við foreldra sína.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.ed. ritgerð loka.pdf | 492.23 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Kennsluverkefni loka.pdf | 503.87 kB | Opinn | Kennsluverkefni | Skoða/Opna |