Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12614
Tilgangur námspilsins Trúarbrögð heimsins er að vera stuðningur við trúarbragðafræði-kennslu í efsta bekk á miðstigi og á unglingastigi grunnskóla. Spilið er fyrst og fremst spurningaspil sem hefur það að markmiði að festa í minni og dýpka skilning nemenda á námsefni sem þegar hefur verið kennt. Í spilinu er fjallað um fimm helstu trúarbrögð heimsins, kristni, gyðingdóm, íslam, hindúisma og búddhatrú. Spurningarnar, sem eru 400 talsins, voru samdar upp úr námsefni sem kennt er á mið- og unglingastigi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð með lokaverkefni-Lokaskil.pdf | 4.8 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |