Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12619
Höfundur ákvað að skrifa ljóðabók og kennsluleiðbeiningar sem einblína á aðferðir leiklistar við ljóðakennslu. Með bókinni og kennsluleiðbeiningunum fylgir greinargerð sem fjallar á fræðilegan hátt um ljóða- og leiklistarvinnu í grunnskólum.
Ljóðabókin Ó-ljóð og kennsluleiðbeiningarnar eru samin með nemendur og kennara miðstigs í huga. Í ljóðabókinni eru tíu frumsamin ljóð og markmið þeirra er að vekja nemendur til umhugsunar um ýmis málefni. Í leiðbeiningunum er að finna fjölbreytt leiklistartengd verkefni sem fylgja hverju og einu ljóði.
Í greinargerðinni er meðal annars farið yfir ljóðakennslu síðastliðinnar aldar, stöðu leiklistar og íslensku í Aðalnámskrá grunnskóla, lykilatriði ljóðagerðar og skapandi ljóðavinnu með notkun aðferða leiklistar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kápa - Bryndís.pdf | 43.78 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Ljóð er leikur einn.pdf | 195.78 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Kennsluleiðbeiningar.pdf | 173.15 kB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna | |
Ó-ljóð.pdf | 1.48 MB | Opinn | Ljóðabók | Skoða/Opna |