Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12623
Með þessu riti er skoðað hvernig tæknin er nýtt innan veggja skólans og þá sér í lagi í tungumálakennslu. Reynt er að svara þeirri spurningu hvernig tæknin er nýtt í tungumálakennslu. Samfélagið hefur tæknivæðst hratt á síðustu áratugum og er því ástæða til að skoða hvort sú þróun hefur náð inn í skólasamfélagið. Farið var yfir rannsóknir sem snúa að tækninotkun í tungumálakennslu og hvernig kennarar í hinum vestræna heimi hafa nýtt sér tæknina í tungumálakennslu. Skoðaðar voru kenningar TTM (e.CALL), verkefni sem DIVIS hópurinn stóð fyrir og hvernig hægt er að nota vefleiðangra og rafræna myndbandsgerð í skólanum. Komist var að þeirri niðurstöðu að tæknin er vissulega notuð í tungumálakennslu og er sífellt verið að leita leiða til þess að nýta tæknina sem best í skólanum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Margur er máttur prentun.pdf | 648.35 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |