is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12658

Titill: 
  • Samstæður og lagaumhverfi þeirra
  • Titill er á ensku Affiliated companies and their legal environment
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á samstæðum hér á landi en samstæður félaga er þegar eitt félag er undir stjórn annars félags og það félag sem er æðra í þessum skilning er nefnt móðurfélag en hitt dótturfélag. Félög innan sömu samstæðu eru mjög tengd eða háð hvort öðru og við myndun á samstæðu hefur það ákveðna þýðingu að lögum.
    Hugtakið samstæður félaga er ekki skilgreint í íslenskum skattalögum, í 55. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt þar sem fjallað er um samsköttun félaga er þó minnst á móðurfélög og dótturfélög, en í hlutafélagalöggjöfinni er hugtakið víða að finna.
    Mikill hluti þeirra viðskipta sem eiga sér stað á hverjum degi eru á milli hagsmunatengdra aðila og má þar nefna viðskipti milli félaga innan sömu samstæðu. Viðskipti á milli samstæðna geta verið verulega frábrugðin því sem almennt gerist ef engin tengsl eru til staðar en í viðskiptum milli ótengdra og óháðra aðila ráðast viðskiptakjör almennt af markaðsaðstæðum. Verðlagning á vöru og þjónustu á milli tengdra eða skyldra aðila eða á annan hátt háðra aðila hefur verið nefnd milliverðlagning. Milliverðlagning getur falið í sér skattasniðgöngu en skattasniðganga felst í fjárhagsráðstöfunum sem aðallega eru gerðar með tilliti til skattalegra sjónarmiða, þannig að ráðstafanir hafa skattalegan ávinning í för með sér. Það lagaákvæði sem skattyfirvöld hafa til að takast á við viðskipti milli tengdra aðila eru að finna í 57. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Það ákvæði gefur skattyfirvöldum heimild til að bregðast við og leiðrétta óeðlilegar fjármálaráðstafanir á milli tengdra aðila.

Samþykkt: 
  • 31.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12658


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ThelmaHlöðversdóttir_Samstæður og lagaumhverfi þeirra.pdf416.34 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna