is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12669

Titill: 
  • Fjármögnunarkostnaður ríkja
  • Titill er á ensku Financing cost of developed nations
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Metin voru áhrif tímaháðra þátta á ávöxtunarkröfu langra ríkisverðbréfa OECD landanna á árunum 2000 til 2010. Við matið nýtti höfundur panel líkan með bundnum þáttum (e. Fixed Effects) fyrir tíma og lönd úrtaksins. Stuðlar fyrir skuldir, auðlegð, milliríkjaviðskipti, lánshæfismat og verðbólgu voru marktækir með 95% öryggi og væntum formerkjum. Athygli vekur að hagvöxtur, sem einnig var marktækur með 95% öryggi hafði jákvætt formerki og eykur þar með ávöxtunarkröfu ceteris paribus (að öllu öðru jöfnu). Einnig var metið líkan með samsetningu skulda sem skýribreytum fyrir smærra úrtak sama þýðis. Stuðlar hlutfalls skulda í innlendri eigu og hlutfalls skulda í erlendri mynt voru marktækir með 99% öryggi og væntum formerkjum. Þrátt fyrir fjölda skýribreyta er lánshæfismat marktækt með 95% öryggi í báðum líkönum sem bendir til þess að fjárfestar leggi vægi á lánshæfismatið sjálft umfram skýribreytur líkansins.

Samþykkt: 
  • 31.7.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12669


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS lokaverkefni Húni Jóhannesson.pdf1.48 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna