is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12681

Titill: 
  • Sóun í hönnunarferli verkfræðistofa á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hönnun er meðal fjölbreyttra verkefna sem unnin eru á verkfræðistofum á Íslandi. Hönnunarstjórn framkvæmda virðist þó oft vera ómarkviss, sérstaklega þegar um ræðir þverfaglega samvinnu. Straumlínu-hönnunarstjórnun er þekkt aðferðafræði sem hefur verið notuð með góðum árangri við hönnunarstjórn framkvæmda í þeim tilgangi að minnka sóun, auka virði og framleiðni. Reynsla erlendis frá sýnir að sóun eigi sér stað í hönnunarferli með ýmsu móti og eigi rætur að rekja til sjálfrar stjórnunarinnar. Forvitnilegt er að vita hvort og hvernig Íslenskar verkfræðistofur vinni að því að minnka eða forðast sóun á hönnunarferlinu og hvort þær hafi tileinkað sér Straumlínu-hönnunarstjórn að hluta eða í heild.
    Meistaraverkefni þetta fer í gegnum hvernig Straumlínu-hönnunarstjórnar hefur þróast frá framleiðslu og til þess sem hún er í dag. Í verkefninu eru skilgreind tvö megin hugtök Straumlínu-hugsunar, þ.e. sóun og virði. Þá eru fyrri rannsóknir skoðaðar og út frá því orsakavaldar sóunar skilgreindir. Rannsóknin er eigindleg hagnýt rannsókn og var framkvæmd á 6 verkfræðistofum á Íslandi.
    Tilgangur rannsóknarinnar er að finna út hvort unnið sé markvisst eftir ákveðinni aðferðafræði til að lágmarka sóun við hönnunarstjórn á íslenskum verkfræðistofum. Markmiðið er að fá yfirsýn yfir hvernig stjórnunarlegar aðferðir eru í raun innan verkfræðistofa á Íslandi, bera aðferðirnar saman við niðurstöður fræðilegrar umfjöllunar um Straumlínu-aðferðafræði og leggja til breytingar á starfsháttum varðandi stjórnunarlegar aðferðir, ef ástæða þykir til.
    Helstu niðurstöður sýna að ekki er unnið eftir Straumlínu-hönnunarstjórnun á verkfræðstofum á Íslandi jafnvel þó einhverjar aðferðir innan hennar séu nýttar að hluta. Samskiptaáætlanir eru ekki nýttar í því mæli sem hægt væri og hönnuðir koma heldur seint að verkefnum. Verkfræðistofurnar vinna allar eftir stöðluðu gæðakerfi sem styður að mörgu leyti við Straumlínu-hönnunarstjórn. Stuðningur frá gæðakerfi myndi gera innleiðingu á Straumlínu-hönnunarstjórn einfaldari. Við innleiðingu er mælt með að notast sé við ákveðið breytingarferli svo aðferðafræðin festist í sessi og skili sér í minnkun sóunar í hönnunarferlinu.
    Lykilorð: Straumlínu-hönnun, sóun, virði, hönnunarstjórn, verkfræðistofur á Íslandi

Samþykkt: 
  • 1.8.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12681


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
23.5.2012 - Sóun í hönnunarferli verkfræðistofa á Íslandi - Runólfur Þór Ástþórsson.pdf1.51 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna