is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12688

Titill: 
  • Lýðræðið handan þjóðríkisins : stjórnarskrártryggð og Evrópusambandið
  • Titill er á ensku Democracy beyond the nation state : constitutional patriotism and the European Union
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessu verki hefur verið skoðað hvort stjórnarskrártryggð geti nýst til þess að lýðræðisvæða Evrópusambandið. Í því samhengi hafa kenningar um lýðræði og þjóðernishyggju verið sérstaklega til skoðunar. Lýðræði hefur verið skoðað í samhengi frjálslynds fulltrúalýðræðis en þjóðernishyggjan út frá stöðu þjóðríksins.
    Einnig hefur verið farið yfir evrópusamrunann og hvernig lýðræðisleg ákvarðanataka hefur birst í honum.
    Hugmyndin um frjálslynt fulltrúalýðræði hefur verið ráðandi á Vesturlöndum en samhliða þeirri hugmyndafræði hefur þjóðernishyggja verið mikil áhrifavaldur á þjóðríkið. Sýnt hefur verið fram á að nauðsynlegt sé að horfa á þessar hugmyndir í
    nýju ljósi ef samræða á milli þjóða Evrópusambandsins á að eiga sér stað, en það er forsendan fyrir því að skoðanamyndun eigi sér stað og þannig gætu ákvarðanir sem teknar eru hjá Evrópusambandinu öðlast aukið lögmæti. Í evrópusamrunanum var í
    upphafi ekki lögð mikil áhersla á þátttöku almennings, sem skýrir að einhverju leyti áhugaleysi almennings um að vera þátttakendur í evrópskri umræðu.
    Þjóðernishyggjan hefur verið sterkt stjórnmálalegt afl í ríkjum álfunnar en í ritgerðinni er bent á að þjóðríkið á við vandmál að stríða sérstaklega í ljósi hnattvæðingar. Sjálfsmynd einstaklinga þarf að taka breytingum til þess að þeir geti verið þátttakendur í stjórnmálalegri umræðu á milli þjóða Evrópusambandsins, það er
    líka forsenda fyrir því að opinber vettvangur geti myndast. Stjórnarskrártryggð, sem leggur áherslu á hefðir, venjur og framkvæmd lýðræðislegrar ákvarðanatöku, gæti verið tæki sem Evrópusambandið notast við til þess að komast að lýðræðislegum
    niðurstöðum.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til júní 2014
Samþykkt: 
  • 1.8.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12688


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hlöðver Ingi Gunnarsson MA 1807853379.pdf662.65 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna