Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12694
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur á undan förnum árum lagt áherslu á að hvetja almenning til að stunda reglubundna hreyfingu með fjölbreyttum verkefnum. Heilsu- og hvatningaverkefnið Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 en Lífshlaupið hófst árið 2008. Þátttaka í þessum verkefnum hefur margfaldast frá upphafi.
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, hafi áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Gögnin sem voru notuð í þessari rannsókn eru fengin úr spurningakönnun sem send var til þátttakenda Lífshlaupsins og Hjólað í vinnuna árið 2011.
Niðurstöður benda til þess að þátttaka í heilsu- og hvatningarverkefnum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Þátttaka í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna hefur hvetjandi áhrif á þátttakendur til að auka sína hreyfingu og nota virkan ferðamáta. Þátttakendur hreyfðu sig meira og notuðu virkan ferðamáta oftar á meðan að þeir tóku þátt í verkefnunum og niðurstöður benda til þess að þeir hafi haldið því áfram nokkrum mánuðum eftir þátttöku. Rannsóknin sýnir að heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, eru öflug lýðheilsutæki sem skila árangri.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
heildar skjal_loka_sent á Bifröst_1.júní.pdf | 1.61 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Viðauki 1.pdf | 217.42 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Viðauki 2.pdf | 83.67 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Viðauki 3.pdf | 25.05 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna | |
Viðauki 3b.pdf | 30.03 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |