is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Meistaraverkefni í lagadeild (MA/ML) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12703

Titill: 
  • Mörkin á milli tilraunar til manndráps og stórfelldrar líkamsárásar
  • Titill er á ensku The difference between attempted murder and aggravated assault
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þegar ákært er fyrir tilraun til manndráps skv. 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er í langflestum tilvikum einnig ákært til vara fyrir stórfellda líkamsárás skv. 2. mgr. 218. gr. hgl. Bendir þessi tilhögun ákæruvaldsins í framsetningu ákæru eindregið til þess að ekki liggi fullkomlega ljóst fyrir hvort háttsemi ákærða skuli heimfærð sem tilraun til manndráps eða stórfelld líkamsárás. Markmiðið með þessari ritgerð er að marka skilin milli þessara tveggja brota. Mörkin milli brotanna verða greind annarsvegar út frá fræðilegri umfjöllun um ákvæði hgl. sem efnissvið ritgerðarinnar snýr að og hinsvegar er gerð ítarleg úttekt á dómaframkvæmd þegar ákært er fyrir tilraun til manndráps, með það að markmiði að greina hvaða efnisþættir í atburðarás skipta máli þegar dómstólar heimfæra verknað til refsiákvæðis.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð
Samþykkt: 
  • 1.8.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12703


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ritgerd_loka.pdf387.76 kBLokaðurHeildartextiPDF