is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12706

Titill: 
  • Titill er á ensku Recidivist offenders in Iceland: What type of crimes do they commit and what are the distinctive features of their offences?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnnar var að greina síbrotamenn á Íslandi, fjölda fangelsisdóma sem þeir afplánuðu, aldur þeirra og við fyrsta, og þriðja fangelsisdóm ásamt því að greina hvaða tegund brots leiddi til fangelsisvistar í hverri afplánun. Gögn rannsóknarinnar voru byggð á gagnagrunnum Fangelsismálastofnunnar ríkisins. Í rannsókninni var síbrotamaður skilgreindur sem einstaklingur sem hafði afplánað óskilorðsbundinn fangelsisdóm þrisvar sinnum eða oftar á tímabilinu 1995-2012. Samkvæmt skilgreiningunni voru 185 karlmenn og þrjár konur í rannsóknargögnunum sem voru skilgreindir síbrotamenn og voru þeir á aldursbilinu 15-76 ára en einungis voru upplýsingar um karlkyns afbrotamenn greindar í rannsókninni. Niðurstöður sýndu að meirihluti síbrotamannanna hlutu fyrsta fangelsisdóminn á aldursbilinu 15-24 ára og meirihluti síbrotamannanna hlutu aftur fangelsisdóma eftir þriðju afplánun. Niðurstöður gáfu einnig til kynna að marktækur munur var á milli tegunda brota eftir aldri síbrotamanna við fyrsta dóm. Þá gáfu niðurstöðurnar til kynna að meirihluti brota síbrotamanna töldust til vægari brota þegar brot voru flokkuð eftir alvarleika. Af niðurstöðum má álykta að nauðsynlegt er að skoða betur hegðun síbrotamamanna og félagslegt umhverfi þeirra til að reyna að sporna við afbrotum á Íslandi.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of the study was to analyze recidivist offenders in Iceland, number of prison sentence they served, age at first and third prison sentence and what was the main type of offence that lead to each prison sentence. The research data was based on The Prison and Probation Administration databases. A recidivist offender was defined in the research as an individual who had served an unconditioned prison sentence three times or more within the time period 1995-2012. A total of 185 males, aged 15-76 years, matched the definition of a recidivist in the study. Three women were defined as recidivist offenders in Iceland but they are excluded from the study. The results indicated that majority of recidivist offenders in Iceland were first imprisoned at the age of 15-24 years. The findings also indicated that there was a significant difference between type of offence by the age at first prison sentence. Finally, the results indicated that the majority of the recidivists´ offences were within the category of lower severe offences. In conclusion, the results indicate that it is of great importance to study the behaviour and social environment of recidivist offenders in Iceland more thoroughly to design prevention and intervention strategies.

Samþykkt: 
  • 1.8.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12706


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Recidivist offenders in Iceland.pdf361.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna