Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12745
Lokaverkefni mitt er saman sett af lítílli skáldsögu, Allt getur gerst og greinagerð um stærðfræði, stærðfræðinám og -kennslu. Skáldsagan fjallar um strák sem heitir Haraldur sem er að ganga í gegnum ýmislegt í lífinu. Hann er mikill íþróttamaður og er nýbyrjaður að hugsa um heilsuna. Hann tengir saman heilsu og prósentureikning til að átta sig á hvað það er hollt og gott fyrir hann að borða. Hann fær til sín gest í draumi sem aðstoðar hann að átta sig á prósentuhugtakinu og einnig aðstoðar kennari hans hann. Hann kemst að því að góð vinkona hans er að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Haraldur og vinur hans Þórhallur reyna að aðstoða Emmu vinkonu sína. Greinagerðin byggist á umfjöllun um það af hverju við þurfum að læra stærðfræði og hvernig hún nýtist okkur í daglegu lífi. Leitað er svara við spurningum eins og: Hver er tilgangur með stærðfræðinámi og til hvers það er mikilvægt? Einnig vitna ég í stærðfræðihluta aðalnámskrá grunnskóla (1999) þar sem greint er frá megináhersluatriðum varðandi stærðfræðinám. Prósentuhugtakið er kynnt og greint frá hugmyndum um hvernig megi nýta skáldsöguna í stærðfræðikennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Af_hverju_stærðfræði_sæbjörg.pdf | 398.62 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Allt_getur_gerst_sæbjörg.pdf | 207.06 kB | Opinn | Skáldsaga | Skoða/Opna |