Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12797
Greinargerð þessi er hluti af lokaverkefni mínu í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands og fjallar um vinnsluferli verkefnisins og aðferðafræðilega þætti er að því lúta. Miðlunarverkefnið sem varð fyrir valinu var sýning í Minjasafni Reykjavíkur – Árbæjarsafni sumarið 2012 og bar hún heitið Krummakrunk með undirtitilinn hrafninn í íslensku samfélagi. Greint er frá gerð sýningarinnar, rannsóknarvinnu, tæknilegri framkvæmd, úrvinnslu heimilda, vinnsluferli og uppsetningu. Auk þess er fjallað almennt um söfn og sýningar, safngesti, tæpt á kostum og göllum sýninga og leitast við að flokka umrædda sýningu og setja hana í samhengi við aðrar sýningar hér á landi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GG-Lokaverkefni-Krummakrunk.pdf | 15.73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |