is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1280

Titill: 
  • Grenndar- og söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
    Viðfangsefni hennar er grenndar- og söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði.
    Grenndarvitundarhugtakið er nýlegt, en það fjallar um þekkingu mannsins á umhverfi
    sínu. Söguvitundarhugtakið merkir tilfinningu fyrir liðnum tíma, nútíð og framtíð.
    Þessar vitundir eru fólki mikilvægar því þær auka næmni og virðingu fyrir umhverfi,
    náttúru og menningu landsins.
    Við lögðum fyrir spurningalista sem innihélt 20 spurningar í fjórum
    grunnskólum á Eyjafjarðarsvæðinu, þar sem við könnuðum þekkingu nemenda á sögu
    og staðháttum Eyjafjarðar. Könnunin var lögð fyrir í 6. og 10. bekk Grenivíkurskóla,
    Hrafnagilsskóla, Oddeyrarskóla og Síðuskóla. Alls tóku 126 nemendur þátt í
    rannsókninni. Niðurstöður könnunarinnar voru þær að töluvert vantar upp á grenndarog
    söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði og eitthvað þarf að gera til að það breytist.
    Það verður að vera samvinna skóla og heimila að fá nemendur til að opna augun fyrir
    nánasta umhverfi sínu og kynna sér helstu einkenni þess og sögu.

Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1280


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
grenndar.pdf361.5 kBOpinnGrenndar - heildPDFSkoða/Opna