Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12831
Í greinargerðinni er fjallað um teikningar John Baine sem hann vann fyrir leiðangur John Stanleys til Íslands og Færeyja sumarið 1789. Myndir hans eru settar í samhengi við teikningar þriggja teiknara úr samtímanum. Spurt er um möguleika teikningarinnar sem miðils og tjáningarforms á okkar tímum samhliða því að kannað er hvað veldur því að teikningar John Baines virðast „nútímalegar“.
Miðlunarhluti verkefnisins er sýning í Bogasal Þjóðminjasafnsins á teikningum Baines frá ofanverðri 18. öld og þriggja annarra listamanna frá öndverðri tuttugustu og fyrstu öld. Með sýningunni er jafnframt varpað fram þeirri spurningu hvort teikningin sé vanmetinn þáttur í stafrænu þekkingarsamfélagi samtímans, í menntun okkar og menningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
thorasigloka.pdf | 1.26 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Textalýsingar f. gagnagr. Lbs. (1).pdf | 261.27 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
J.BAine handskrifaður listi.pdf | 64.09 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Sýningarskrá.pdf | 2.22 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
2010 Kynning Syn.verkefni Teikning.pdf | 722.33 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Teikning- námskeið.pdf | 46.69 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |
Athugsemd: Einungis heimilt að lesa af skjá