is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12849

Titill: 
  • Höfuðverkur : þrautabók ásamt greinargerð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefni þetta samanstendur af þrautabók sem undirrituð tók saman ásamt greinargerð. Verkefnið er til B.Ed. – prófs í grunnskólakennarafræði á Mennta-vísindasviði Háskóla Íslands og er vægi þess 10 einingar. Leiðbeinandi minn var Guðbjörg Pálsdóttir, lektor í stærðfræðimenntun.
    Þrautabókin, sem nefnist Höfuðverkur, er ætluð til kennslu í stærðfræði á unglingastigi. Þar er að finna 15 vísbendingaþrautir sem reyna á rökhugsun og röksemdarfærslu. Með hverri þraut fylgir mynd eða tafla sem hægt er að nýta við lausnarleit. Einnig er að finna kennsluleiðbeiningar sem sniðnar eru að hverri þraut fyrir sig, ásamt lausnum.
    Í greinargerð þessari er byrjað á fræðilegum kafla þar sem fjallað er um þrautalausnir sem kennsluaðferð. Einnig er fjallað um þrautalausnir í sambandi við stærðfræðinám og –kennslu og útlistaðar eru nokkrar þrautalausnaraðferðir samkvæmt hugmyndum fræðimanna. Því næst geri ég grein fyrir tilurð bókar minnar, Höfuðverks, sem og bókinni sjálfri. Að lokum segi ég frá athugun sem ég gerði á nokkrum grunnskólanemendum um hvers konar lausnaraðferðir þeir notuðu við nokkrar þrautir sem er að finna í bókinni. Við úrvinnslu niðurstaðna studdist ég við líkan eftir Richard Lesh, Tom Post og Merlyn Behr sem byggist á fimm aðgreindum lausnaraðferðum. Þær eru: teikningar/myndir, tákn, umræður/frásagnir, raun-verulegar aðstæður og hlutbundin vinna. Niðurstöður athugunar minnar voru að flestir þeir nemendur sem tóku þátt , styðjast við teikningar eða myndir við úrlausn en einnig flokkuðust margir undir umræður/frásagnir, þ.e. þeir töluðu sig í gegnum þrautina. Enginn þátttakandi féll undir flokkinn um hlutbundna vinnu.

Athugasemdir: 
  • Þrautaheftið Höfuðverkur ásamt greinargerð. Verkefni til B.Ed - prófs.
Samþykkt: 
  • 5.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12849


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kapa - Nanna Moller.pdf32.75 kBOpinnTitilsíðaPDFSkoða/Opna
Titilsiða - Nanna Moller.pdf169.96 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
B.Ed Nanna Möller.pdf1.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna