Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12906
Þegar vinsældir Harry Potter bókana voru sem mestar þá urðu þær fyrir miklu aðkasti frá trúarleiðtogum vegna þess að þeir trúðu því að bækurnar ýttu undir galdur. Í þeirra augum þá er galdur hættulegur þar sem Biblían varar fólk við þeirri hættu sem honum fylgir. Hættu sem lýsir sér í því að galdur getur verið spilandi og hann getur afvegaleit fólk frá sinni réttu lífsleið en einnig ýtt undir skurðgoðadýrkun. Út af þessu þá voru stofnaðir viðburðir þar sem fólk gat fylgst með og hvatt áfram á meðan Harry Potter bækurnar voru brenndar á báli. Þessir viðburðir hlutu mikla athygli í fjölmiðlum og upp frá því spratt lífleg umfjöllun um það hvort það væri satt að Harry Potter bækurnar væru hættulegar?
Ritgerð þessi fjallar um þær kristilegu trúarhugmyndir sem finnast í Harry Potter bókunum en skoðað verður hvernig þessar hugmyndir birtast og hvaða boðskap þær boða. Aðallega verður farið eftir The Gospel According to Harry Potter eftir Connie Neal en einnig verður rýnt í fleiri verk. Ætlunin er sú að finna út hvort Harry Potter bækurnar séu í raun skaðsamar með því að boða ókristilegt líferni eða hvort þær búi yfir dýpri merkingu?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð.pdf | 290.77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
ritgerdir_forsida_1.pdf | 29.21 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
ritgerdir_titilsida.pdf | 6.32 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |