is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12942

Titill: 
  • Hvað er í boði? : nám á starfsbraut og þeir möguleikar sem standa nemendum til boða að námi loknu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er tíu eininga lokaritgerð til B.A.-prófs í þroskaþjálfafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið er í tveimur hlutum, annars vegar er um að ræða fræðilega umfjöllun og litla rannsókn þar sem við beinum sjónum að framhaldsskólum og starfsbrautum og hins vegar bækling sem fjallar um möguleika fatlaðs fólks til atvinnu og náms að framhaldskólanámi loknu. Við framkvæmdum eigindlega rannsókn þar sem við tókum viðtöl við sex nemendur á starfsbraut í tveimur framhaldsskólum vorið 2012. Markmið okkar var að kanna hvaða væntingar nemendur á starfsbraut hefðu til framtíðar sinnar að námi loknu. Í viðtölum við nemendur kom í ljós að þeir vissu lítið sem ekkert um þá möguleika sem þeim standa til boða að loknu námi á starfsbraut. Í framhaldi af viðtölunum unnum við bækling með upplýsingum um það sem helst er í boði fyrir fatlað fólk eftir nám á starfsbraut. Tilgangur bæklingsins er að upplýsa nemendur um þá möguleika sem bjóðast hvað varðar atvinnu og menntun. Það kom okkar á óvart hve lítið er í boði varðandi menntun og atvinnu eftir nám á starfsbraut sem og að flest þau úrræði sem þó eru í boði eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Það sem þessum einstaklingum stendur til boða hvað varðar menntun er annað hvort diplómanám við Háskóla Íslands eða námskeið hjá Fjölmennt. Þegar kemur að atvinnu hefur fatlað fólk um tvennt að velja: atvinnu með stuðningi eða verndaða vinnustaði. Möguleikar fatlaðs fólks að loknu námi á starfsbraut eru því ekki fjölbreyttir.

Samþykkt: 
  • 12.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12942


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð 4 mai - Hulda Bjork og Kristrun asta.pdf780.15 kBLokaður til...30.11.2132HeildartextiPDF