is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12972

Titill: 
  • Innra mat framhaldsskóla. Aðferðafræði og innleiðing
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð, sem er verkefnamat, er sett fram stöðumat (e. formative evaluation) á innleiðingu innra mats eða sjálfsmats í framhaldsskólum á Íslandi. Tilgangur verkefnisins er að greina þær sjálfsmatsaðferðir sem notaðar eru í framhaldsskólum landsins, hvernig þær voru mótaðar og innleiddar frá lögleiðingu sjálfsmats árið 1996.
    Við verkefnamatið var leitað fanga í opinberum gögnum framhaldsskólanna sem og lögum og reglugerðum er varða innra mat skóla. Þá fór fram eigindleg rannsókn þar sem byggt er á einstaklingsviðtölum við 10 stjórnendur úr íslenskum framhaldsskólum ásamt rýnihópsviðtali við 4 stjórnendur úr öðrum skólum.
    Niðurstöður matsins eru í stuttu máli þær að 16 árum eftir lögleiðingu sjálfsmats hafa flestir íslenskir framhaldsskólar náð að móta innra mat sem þeir telja við hæfi eftir margvíslegar tilraunir. Gerðar voru tilraunir með heilsteypt matskerfi sem ekki gengu upp og hafa flestir snúið sér að matsaðferðum sem aðlagaðar eru þörfum hvers skóla. Innra matið er talið mjög nauðsynlegt í skólastarfinu en tilfinnanlega skortir fjármagn og tíma til að sinna því. Þá benda niðurstöður til þess að skort hafi undirbúning fyrir innleiðingu sjálfsmatsins og fræðslu innan skólanna. Verkefnið var fólki ókunnugt og ekki hluti af íslenskri skólamenningu. Þurft hefði að vinna jarðveginn betur áður en hafist var handa. Meiri og markvissari stuðning hefði einnig þurft frá ráðuneyti menntamála við innleiðinguna.

  • Útdráttur er á ensku

    Abstract
    This master’s dissertation is a program evaluation and involves a formative assessment of the implementation of self-evaluation in secondary schools in Iceland. The purpose of the evaluation is to analyse the evaluation methods that are used in the schools, how they were formed and implemented since self-evaluation was legislated in 1996.
    In the program evaluation, information was sought from official documents, laws and regulations, which concern self-evaluation in schools. Then a qualitative research was performed, based on individual interviews with 10 leaders of Icelandic secondary schools, as well as a focus group interview with 4 leaders of different schools.
    The main conclusion of the evaluation is that 16 years after the legislation of the self-evaluation most of the secondary schools have managed to develop a self-evaluation method, which they consider appropriate after a variety of experiments. Experiments were made with complete systems that didn’t succeed and most have turned to valuation techniques that are adapted to the needs of each school. Self-evaluation is considered very necessary in schools but it is definitely influenced by lack of budget and time. Then the conclusions reveal lack of preparation and instructions before the implementation of the self-evaluation. The subject was strange to the school community and not a part of the Icelandic school culture. More targeted support would also have been required from the Ministry of Education by the implementation.

Samþykkt: 
  • 12.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12972


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Innra mat framhaldsskóla.pdf1.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Innra mat framhaldsskóla2.pdf1.21 MBOpinnViðaukiPDFSkoða/Opna