is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1300

Titill: 
  • Fóðurþörf, vöxtur og efnaskipti þorsks í eldiskerfum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarþátturinn í eldi á þorski og prótein er dýrasti hluti af fóðrinu. Próteininnihald fóðurs og verð á próteini í fóðri skiptir því miklu mái fyrir framleiðslukostnað í þorskeldi. Í verkefninu var rannsakað hversu vel þorskur vex við mismunandi próteinsamsetningar í fóðri en það gæti skipt miklu máli hvað fóðurnýtingu varðar. Fiskinum í tilrauninni var skipt í 6 hópa og var hverjum hóp skipt í 3 eldisker. Fóðrað var allan sólarhringinn og innihélt tilraunafóður mismunandi hlutfall próteina, fitu og kolvetna. Ný aðferð var aðlöguð og notuð til mælinga á ammoníum, er hún einfaldari og hættuminni heilsu manna en sú aðferð sem notuð hefur verið í fiskeldisrannsóknum hérlendis.
    Rannsakað var hvernig þorskurinn tæki fóðrið, hver útskilnaður hans væri við hverja fóðurtegund, vöxtur fisksins og heildarát. Niðurstaðan var sú að hvorki reyndist vera marktækur munur var á vexti fiska m.t.t. fóðurtegunda né m.t.t. súrefnisupptöku eða útskilnaðar á koltvíoxíði.
    Til þess að tengja saman þau tvö svið sem verkefnið er unnið frá, voru umhverfisáhrif fiskeldis og reglugerðir hvað varðar umhverfismat og starfsleyfi einnig skoðuð. Reynt er að átta sig á þeim áhrifum sem fiskeldi getur haft á sitt nánasta umhverfi.
    Lykilorð: Þorskur, eldi, fóður, vöxtur, umhverfisáhrif

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1300


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
fodurthorf.pdf1.05 MBTakmarkaðurFóðurþörf - heildPDF
fodurthorf_e.pdf155.87 kBOpinnFóðurþörf - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
fodurthorf_h.pdf214.3 kBOpinnFóðurþörf - heimildaskráPDFSkoða/Opna
fodurthorf_u.pdf154.99 kBOpinnFóðurþörf - útdrátturPDFSkoða/Opna