Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13021
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að öðlast innsýn í upplifun pólskra kvenna á eigin stöðu í íslensku samfélagi í og eftir atvinnuleysi. Rannsóknin byggir á viðtölum við fimm konur sem hafa upplifað að flytja til nýs lands og lent þar í langtímaatvinnuleysi og á viðtölum við tvo starfsmenn Vinnumálastofnunar sem fara með málefni innflytjenda í atvinnuleit. Sjónum var beint að því hvaða afleiðingar konurnar telja flutning til nýs lands og atvinnuleysi í kjölfarið hafi haft á náms- og starfsferil sinn og heilsu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að skortur á íslenskukunnáttu virðist vera helsti áhrifavaldur í þróun náms- og starfsferils kvennanna eftir að þær komu til Íslands. Persónuleiki og tengslanet kvennanna virðist einnig hafa áhrif á hversu vel þeim gengur að takast á við atvinnuleysið og afleiðingar þess. Aðgengi innflytjenda að náms- og starfsráðgjöf hjá Vinnumálastofnun gæti verið betra og úrræði fjölbreyttari. Niðurstöðurnar benda til að vinnan sé mikilvæg í lífi þessara kvenna þar sem hún er í mörgum tilvikum helsta tengsl þeirra inn í íslenskt samfélag. Vonast er eftir að niðurstöðurnar hjálpi til þess að auka skilning á stöðu og reynslu kvenna af erlendum uppruna og nýtist í mótun þjónustu og úrræða fyrir innflytjendur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Elín Júlíana Sveinsdóttir.pdf | 976.59 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |