Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13060
Þessi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. gráðu í kennslu yngstu barna í grunnskóla við Háskóla Íslands. Viðfangsefni ritgerðarinnar er einhverfa, greining hennar og kennsluúrræði á Íslandi fyrir einstaklinga á einhverfurófinu. Við undirbúning ritgerðarinnar aflaði ég mér fjölbreyttra heimilda um efnið og kannaði starf Greiningar- og ráðgjafarstofnunar ríkisins sem sér um greiningar á þroskafrávikum barna á Íslandi.
Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað almennt um einhverfu, einhverfurófið og mismunandi þætti einhverfunnar, starfið á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, þjálfunarleiðir fyrir einhverfa sem í boði eru og hagnýta kennsluhætti fyrir nemendur á einhverfurófinu. Að lokum er svo fjallað um réttindi einstaklinga á einhverfurófinu í grunnskólum landsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKAVERKEFNI B.Ed.pdf | 953.96 kB | Lokaður til...25.05.2130 | Lokaritgerð |