is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13069

Titill: 
  • Sjálfstæði sveitarfélaga og ábyrg fjármálastjórn
  • Titill er á ensku Municipalities indipendence and responsible financial management
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni rannsóknarinnar er sjálfstæði sveitarfélaga og ábyrg fjármálastjórn þeirra og staða sveitarfélaga allt frá hinum fornu hreppum til stöðu sveitarfélaga á árinu 2012. Leitað er svara við fjórum megin rannsóknarspurningum sem settar eru fram til að leggja mat á hverjar séu helstu orsakir veikrar fjárhagsstöðu íslenskra sveitarfélaga.
    Umfjöllunin er tengd skoðunum fræðimanna á umboðskenningum m.a. um freistnivanda og hrakval og hvort unnt sé að styðjast við mismunandi framsetningu þeirra kenninga til að varpa ljósi á slæma fjárhagsstöðu íslenskra sveitarfélaga.
    Rannsóknin er byggð á eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem gögn og heimildir eru tekin til úrvinnslu og greiningar og þau lögð til grundvallar umfjölluninni í heild sinni.
    Megin niðurstöður rannsóknarinnar eru að slæma fjárhagsstöðu sveitarfélaga á Íslandi megi m.a. rekja til veikleika í stjórnkerfi þeirra, skorti á sérþekkingu sveitarstjórnarmanna, veiku embættismannakerfi, fyrirkomulagi kosninga og aukinna krafna íbúa og hagsmuna-samtaka. Þá staðfestir rannsóknin að skortur á eftirliti með fjármálum sveitarfélaga á sl. árum og áratugum og skortur á samráði ríkis og sveitarfélaga um samstilltar aðgerðir í efnahagsmálum hafa haft neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu íslenskra sveitarfélaga. Hins vegar leiðir rannsóknin í ljós að ekki er hægt að halda því fram að slæma fjárhagsstöðu sveitarfélaga megi rekja til veikrar stöðu sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu

Samþykkt: 
  • 17.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13069


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skúli Þórðarson - MPA ritgerð.pdf1.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna