is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13118

Titill: 
  • Finnst ég vera á réttri leið : viðhorf stærðfræðikennara til eigin kennsluaðferða
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni til meistaragráðu í Náms- og kennslufræði við Háskóla Íslands er fjallað um viðhorf stærðfræðikennara til eigin kennsluaðferða. Gert var ráð fyrir að kennarar veldu sér kennsluaðferðir út frá einhverjum forsendum. Til að skýra það var meðal annars leitað til Bruners og líkana hans um það hvernig nám fer fram. Einnig voru kennsluaðferðir mátaðar við atferlisstefnu og félagslega og róttæka hugsmíðihyggju.
    Verkefnið var eigindleg tilviksrannsókn sem byggði á samtölum við fimm stærðfræðikennara, þrjá skólastjóra og setu í kennslustundum hjá kennurum. Helstu niðurstöður voru þær að sumir kennarar notuðu fáar kennsluaðferðir og aðrir margar en allir höfðu ákveðnar skoðanir á aðferðunum sem þeir notuðu. Engin ein aðferð fékk besta dóma, heldur virtist vera einstaklingsbundið hvaða álit kennarar höfðu á hverri aðferð fyrir sig.
    Túlkun á niðurstöðum leiddi í ljós að Steinar sem notaði að mestu leyti útlistunar- og þjálfunaraðferðir aðhylltist atferlisstefnuna og annað líkan Bruners um nám. Fanney sem notaði mest leitaraðferðir aðhylltist róttæka hugsmíðihyggju og þriðja líkan Bruners. Agnes og Sóldís sem voru hrifnastar af umræðu- og spurnaraðferð ásamt hópvinnu aðhylltust félagslega hugsmíðihyggju og fjórða líkan Bruners. Hanna notaði ólíka hugmyndafræði eftir því hvort hún kenndi í sjötta eða tíunda bekk. Í sjötta bekk var hún verkstjóri, aðhylltist róttæka hugsmíðihyggju og þriðja líkan Bruners en í tíunda bekk notaði hún nær eingöngu útlistunaraðferðir og aðhylltist atferlisstefnuna og annað líkan Bruners. Val á kennsluaðferðum virtist vera algjörlega undir hverjum og einum kennara komið og höfðu þeir mikið frjálsræði. Einstaklingsbundið var hvort þeir nýttu frjálsræðið til að hafa kennsluna fjölbreytta eða fábreytta.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis for a master’s degree in education at the University of Iceland addresses mathematics teachers´ opinions on their teaching methods. It was presumed that teachers chose their teaching methods built on the logic that had meaning for themselves. For explanation Bruner’s four models of learners´ mind was used. Teaching methods were as well put in line with behaviourism and social and radical constructivism.
    This was a qualitative case study built on interviews with five mathematics teachers, three principals and observations of the teachers in classes. The main results included that teachers used a variety of teaching methods but also had strong opinions on the methods they used. No single method was considered the overall best but rather the teachers favoured one or more method individually.
    Interpretations of the results revealed that Steinar who used methods built on direct teaching favoured behaviourism and Bruner’s second model. Fanney who used methods such as inquiry, problem-based learning and project-based learning favoured radical constructivism and Bruner’s third model. Agnes and Sóldís who used methods built on conversation and questioning along with group work favoured social constructivism and Bruner’s fourth model. Hanna altered her ideology according to whether she was teaching in the sixth or the tenth grade. In the sixth grade she used methods such as inquiry, problem-based learning and project-based learning; she seemed to favour radical constructivism and Bruner’s third model. In the tenth grade she used methods built on direct teaching; she favoured behaviourism and Bruner’s second model. Choosing a teaching method seemed to be exclusively done by the teachers. It varied whether they used their freedom to utilize multiple teaching methods or just a few of them.

Samþykkt: 
  • 19.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13118


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
med_elinborg_valsdottir.pdf830.2 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna