is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13123

Titill: 
  • Tillaga að stefnumiðuðu árangursmati fyrir Stuðla
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis sem lagt er fram sem lokaritgerð til MS gráðu í mannauðsstjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands var að hanna stefnumiðað árangursmat fyrir Stuðla til þess að kanna hvort og hvernig slíkt árangursstjórnunarkerfi gæti leitt til ávinnings fyrir stofnunina. Tillagan var unnin miðað við hlutverki stofnunarinnar og með því hugarfari að ætlunin væri að innleiða kerfið í starfsemina. Verkefnið var unnið með helstu stjórnendum stofnunarinnar á tímabilinu desember 2010 til maí 2011. Fundarhöld og umræður leiddu til hönnunar stefnukorts, árangursmælikvarða, og skorkorts. Fjöldi markmiða á stefnukortinu var 13 og voru hannaðir mælikvarðar fyrir 10 þeirra. Í ljós kom meðal annars að mannauðsmál vega þungt í starfseminni; gæði í verklagi og starfseminni í heild er mikið háð þekkingu og raunfærni mannauðsins. Símenntun starfsmanna er því mikilvæg. Höfundur ályktar með skírskotun í fræðilegar staðreyndir og atriði sem komu fram í verkefninu að upptaka stefnumiðaðs árangursmats gæti verið stofnuninni hagfellt. Kerfið gæti hjálpað stjórnendum að halda betur utan um starfsemina með reglulegu stöðumati, stefnan gæti orðið öllum ljósari og stefnumiðuð stjórnun gæti orðið skilvirkari. Gegnsæi gæti aukist og þjónustan gæti orðið betri. Í lok ritgerðarinnar eru sett fram fræðileg atriði er varða stjórnun á breytingum og innleiðingu árangursstjórnunar í skipulagsheildum.
    Lykilhugtök ritgerðar eru: Stefnumiðað árangursmat, árangursstjórnun, stefnukort, árangursmælikvarðar, mannauðsstjórnun, Stuðlar, kulnun í starfi.

Samþykkt: 
  • 20.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13123


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS_Ritgerðin (Repaired).pdf4.3 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna