is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13134

Titill: 
  • Hönnun á sterku vörumerki. Rannsókn á uppbyggingu vörumerkisins Icelandair
  • Titill er á ensku Designing a strong brand. Research on the brand Icelandair
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vörumerki hafa verið til óralengi. Framleiðendur nota vörumerki til aðgreiningar á vörum og þjónustu samkeppnisaðila sinna. Mikilvægt er að unnið sé rétt að uppbyggingu vörumerkja og farið sé eftir þeim fræðum sem liggja að baki árangursríku vörumerki. Að mörgu þarf að huga þegar kemur að hönnun og nafngift vörumerkis. Ímynd vörumerkis hefur jafnan mikið um það að segja hvort vörur og þjónusta sem tengjast því njóta velgengni eða ekki. Það gefur því auga leið að mikil verðmæti felast í árangursríku vörumerki og getur það sem slíkt verið ein verðmætasta eign fyrirtækja.
    Í þessari ritgerð er vörumerkið Icelandair, tekið fyrir og það rannsakað út frá kenningum um vörumerkjasetningu. Icelandair er eitt sterkasta íslenska vörumerkið og fer vegur þess á alþjóðavettvangi ört stækkandi. Farið verður yfir sögu fyrirtækisins, tengsl þess við Ísland og aðferðir þess í markaðssetningu. Tilgangur ritgerðarinnar er að komast að því hvort Icelandair fylgi hefðbundnum fræðum um markaðssetningu í vörumerkjastjórnun sinni. SVÓT-greining á vörumerkinu og greining á styrkleikum og aðgreiningarþáttum vörumerkisins út frá CCBE líkaninu verða gerðar með því markmiði að varpa ljósi á samkeppnisforskot fyrirtækisins á íslenskum og erlendum markaði.

Samþykkt: 
  • 20.9.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13134


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Rakel_Gunnarsdóttir_BS.pdf713.52 kBLokaður til...01.01.2030HeildartextiPDF