Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13193
Minningabók íslenskar hermanna 1914-1918 er upptalning á flestum þeim sem innrituðust í kanadíska herinn á árum fyrri heimstyrjaldarinnar og einnig á einstaklingum sem innrituðust í bandaríska herinn. Upplýsingarnar í Minningabókinni eru í raun heilmiklar en svara ekki nema broti af þeim spurningum sem vakna í tengslum við þetta efni. Því á bak við myndirnar og textann sem eru í bókinni leynist í raun miklu meiri og stærri frásögn. Bókin svarar heldur ekki þeirri spurningu til fulls hvar og hvernig Hallgrímur féll í Frakklandi 3. september 1918.
Hvar var þá hægt að finna meira efni og heimildir um þetta tímabil í lífi Vestur- Íslendinga í Kanada sem börðust í skotgröfum Frakklands og annar staðar á þeim svæðum sem fyrri heimstyrjöldinni geisaði 1914-1918? Ef svo bæri til að þetta efni og vangaveltur um efnisleit bæri á góma í góðu kaffiboði þá yrði þeim sem spyrði líklegast ráðlagt ( á milli kaffibolla og tertusneiða) að leita á Veraldarvefinn, þann óendalega upplýsingabrunn sem hann er. Kaffibollinn yrði lagður til hliðar og þessi setning sögð:,,Af hverju seturðu þetta ekki bara í leit á Netinu?‘‘ (Af hverju gúglar þú þetta ekki bara). Í dag er það nefnilega þannig að þeim sem leita að upplýsingum er ekki bent á að drífa sig á næsta minjasafn eða bókasafn og setjast þar niður og glugga í bækur, gömul dagblöð og önnur gögn. Veraldarvefurinn er sá staður sem fólki dettur fyrst í hug í dag að leita á. En þá var það spurningin hvernig og á hvaða hátt gæti veraldavefurinn upplýst, miðlað og sagt söguna um líf og örlög íslenskra hermanna í Kanada, sem tóku þátt í stríðsátökunum í Evrópu 1914-1918?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsíða kmh.pdf | 15.37 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
titilsíða kmh.pdf | 93.54 kB | Opinn | Skoða/Opna | ||
Greinag II yfirfarin.pdf | 533.23 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |