is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1321

Titill: 
  • Skóladrengir og karlmennska - fjötrar eða frelsi? : hefur karlmennskuorðræðan áhrif á drengi í skóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2005.
    Lokaverkefnið skiptist í megindráttum í tvo hluta. Fyrri hlutinn er fræðileg umfjöllun um drengi, karlmennsku, skóla og drengi í skóla. Síðari hlutinn fjallar um rannsókn sem gerð var um það hvað foreldrum og drengjum í skóla finnst vera karlmennska og hvort orðræða um karlmennsku hefur áhrif á drengi í skóla. Rannsóknin er bæði egindleg og megindleg. Þátttakendur voru hópur foreldra og drengir á unglingastigi í einum skóla. Tekin voru viðtöl við foreldra en lögð gagnvirk könnun fyrir drengina.
    Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvaða hugmyndir foreldrar og drengir hafa um karlmennsku, hvaða áhrif orðræðan um karlmennsku hefur á drengi í skólum. Einnig var skoðað hvort sömu kröfur eru gerðar til kynja í skóla.
    Meginniðurstöður eru þær að hugmyndir foreldra og drengja líkjast ríkjandi hugmyndum um karlmennsku. Orðræða um karlmennsku hefur áhrif á foreldra og drengi þannig að hún mótar hugsanir þeirra og hegðun. Umhverfið gerir þær kröfur á drengi að þeir passi inn í staðlaða ímynd karlmennskunnar og það keppast þeir við. Samhliða hefðbundnum hugmyndum um karlmennsku eru einnig merki um að hún sé að taka breytingum.
    Rannsakendur telja mikilvægt að fólk almennt sé meðvitað um áhrif karlmennskuorðræðunnar á drengi og hvernig draga megi úr skaðlegum áhrifum hennar.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1321


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
skoladrengir.pdf498.66 kBOpinnSkóladrengir - heildPDFSkoða/Opna
skoladrengir_konnun7.pdf44.51 kBOpinnSkóladrengir - fylgiskjal1PDFSkoða/Opna
skoladrengir_konnun8.pdf45.57 kBOpinnSkóladrengir - fylgiskjal2PDFSkoða/Opna
skoladrengir_konnun9.pdf48.37 kBOpinnSkóladrengir - fylgiskjal3PDFSkoða/Opna
skoladrengir_konnun10.pdf44.87 kBOpinnSkóladrengir - fylgiskjal4PDFSkoða/Opna