Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13238
Markmið þessa verkefnis er að hanna fallegan almenningsgarð á ónotuðu svæði sem er um 1 ha að stærð, í hjarta Siglufjarðar. Með tímanum hefur starfsemi þessa svæðis sem áður var fótboltavöllur Knattspyrnufélags Siglufjarðar, lagst niður og er svæðið ekkert nýtt í dag. Samhliða verður skoðuð uppbygging íbúðarhúsnæðis á svæðinu og hvernig það getur styrkt fyrirhugaðan almenningsgarð. Ýmis gögn voru notuð til að kynnast sögu staðarins og hvers vegna hann er eins og hann er. Greiningar eru notaðar til að sjá hvað ber að hafa í huga í hönnun vallarins en þær voru svo teknar saman og notaðar áfram í niðurstöðum og hönnunartillögu sem er lögð fram í síðasta hluta verkefnisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ÍrisStefáns12.pdf | 89.85 MB | Opinn | Skoða/Opna |