is Íslenska en English

Lokaverkefni (Diplóma bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > Dip Iðn- og tæknifræðideild / Department of Applied Engineering >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13248

Titill: 
  • Bakvatnslokur
Námsstig: 
  • Diplóma bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Skýrsla þessi fjallar um rannsókn, greiningu og lausn á rekstrarvandamáli sem hrjáð hefur vélasamstæður 1 og 2 við Andakílsárvirkjun. Virkjunin er vatnsaflstöð í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og er önnur af tveimur vatnsaflsstöðvum sem Orkuveitan rekur.Rekstrarvandinn lýsir sér í óróa á sogþrýstingi vélanna sem leiðir af sér að ekki er hægt að keyra vélanar nema á þröngu aflsviði vélanna án þess að vandinn geri vart við sig. Höfundur rannsakar og reynir að nálgast og greina þennan vanda og koma með lausn á honum. Lausnin er sjálfvirkar bakvatnslokur staðsettar í frárennslisrásum vélasamstæðanna. Hlutverk þessara loka er að regla sogþrýstinginn með því að hækka eða lækka hæðina í frárennslisrásunum. Lokurnar verða keyrðar af vökvatjökkum og munu þær deila sameiginlegri dælustöð. Iðntölva sér svo um að regla sogþrýstinginn með hliðsjón af afli vélar.

Samþykkt: 
  • 4.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13248


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni Véliðnfræði 2011-bakvatnslokur.pdf4.63 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna