Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13254
Ritgerðin fjallar um rannsókn sem gerð var á innflytjendum á Suðurnesjum, sem í þessu tilfelli voru Pólverjar. Rannsóknin var gerð í þeim tilgangi að skoða hvort eða hvernig þessum innflytjendum hefur tekist að viðhalda sínum hefðum, siðum og venjum og um leið sjálfsmynd sinni sem Pólverjar. Voru hátíðir því skoðaðar sérstaklega og var einkum litið til þess hvort Pólverjar eru að taka upp einhverja íslenska siði á kostnað þeirra pólsku. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að Pólverjar á Suðurnesjum hafa skapað sér þá aðstöðu innan samfélagsins sem þarf til að þeir geti viðhaldið sínum hefðum, siðum og venjum og þá um leið viðhaldið sjálfsmynd sinni sem Pólverji. En rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að ákveðinn kynslóðamunur hefur myndast þar sem börnin höfðu tekið íslenska siði og blandað þeim inn í þá pólsku.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA Lokaskil.pdf | 601.61 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |