is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13266

Titill: 
  • Dagdeildarmeðferð byggð á díalektískri atferlismeðferð Linehan fyrir fólk með jaðarpersónuleikaröskun: Árangursmat með einliðasniði
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að árangursmeta með einliðasniði þriggja mánaða
    dagdeildarmeðferð sem er byggð á díalektískri atferlismeðferð Linehan, fyrir
    skjólstæðinga með jaðarpersónuleikaröskun. Ekki er vitað til að það hafi verið gert
    áður. Lítið er til af íslenskum rannsóknum á árangri meðferðar við
    persónuleikaröskunum. Þátttakendur voru fjórar konur, meðalaldur þeirra var 24 ár.
    Staðlað mat á persónuleikavandamálum (Standardised Assessment of Personality
    (SAPAS)), alvarleika-kvörðun á persónuleikavandamálum (Severety Indices of
    Personality Pathology (SIPP-118)) og skimunarlisti SCID-II voru lagðir fyrir áður en
    skjólstæðingar mættu í greiningarviðtöl. Þær fóru í greiningarviðtöl hjá sálfræðingi áður
    en aðalmeðferð hófst og aftur eftir að henna lauk. Greining fór fram með SCID-II
    (Structured Clinical Interview for DSM Disorders) og MINI (Mini International
    Neuropsychiatric Interview). Virknimatsviðtal var tekið og upplýsingar fengnar um
    hvaða hegðun veldur oftast vanda í daglegu lífi. Til að meta árangur meðferðarinnar
    voru eftirtaldir listar lagðir fyrir vikulega: Kentucky mælikvarði á árvekni (Kentucky
    Inventury of Mindfulness Skills (KIMS)), kvarði sem metur erfiðleika í tilfinningastjórn
    (Difficulties in Emotion Regulation Scale (DERS)), kvarði sem metur hvata til
    sjálfskaða (Self Injury Motivation Scale (SIMS)), kvarði sem metur tilfinningaviðbrögð
    (Emotion Reactivity Scale (ERS)), kvarði sem metur þunglyndi, kvíða og streitu
    (Depression Anxiety Stress Scale (DASS)), spurningalisti sem metur
    jaðarpersónuleikaeinkenni og „rauða flaggið“ þ.e. ögrandi spurning ætluð til að meta
    viðbrögð við ögrun. Aðalniðurstöður eru að meðferðin skilaði þátttakendum ólíkum
    árangri. Notagildi einliðasniðs til að meta meðferð fyrir skjólstæðinga með
    jaðarpersónuleikaröskun sýndi sig, sýnir vel breytileika sem er einkennandi fyrir
    þennan skjólstæðingahóp og er vel framkvæmanleg í venjulegri meðferð.

Samþykkt: 
  • 8.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13266


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ms-ritgerd.pdf1.1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna