is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13275

Titill: 
  • Neysluvatnsgæði og vatnsvernd
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð eru skoðuð gæði neysluvatns og staða vatnsverndar á Íslandi. Þetta er gert með því að gera úttekt á vatnsgæðum hjá tuttugu vatnsveitum m.t.t.efnafræðilegra þátta, skoða lagaramma og hvernig vatnsvernd er tryggð í lögum og skoða hættu á mengun og sjúkdómum sem berast með vatni. Farið er yfir nokkra vatnsborna faraldra bæði innanlands og utan.
    Helstu niðurstöður eru þær að neysluvatn á Íslandi hjá þeim vatnsveitum sem skoðaðar eru fullnægir alltaf kröfum um gæði efnafræðilegra þátta. Við tölfræðigreiningu kemur í ljós aukning á nítrati á þeim vatnsverndarsvæðum þar sem stundaður er landbúnaður og ræktun. Við skoðun á löggjöf er varðar vatnsvernd kemur fram að bann við mengun vatns er afdráttarlaus í íslenskri löggjöf en ýmislegt vantar á eftirfylgni og eftirlit sérstak¬lega með minni vatnsveitum. Einnig var skoðuð þróun á sex ára tímabili í framkvæmd löggjafarinnar um vatnsvernd með samanburði við könnun gerða af Umhverfisstofnun árið 1997. Nokkuð hefur miðað í að skilgreina vatnsverndarsvæði en sama var ekki að segja um starfsemi á verndarsvæðum sem hafði aukist töluvert á þessum sex árum. Við skoðun á hópsýkingum af völdum mengaðs neysluvatns kom í ljós að nauðsynlegt er að bæta skráningu og eftirfylgni til að læra af reynslunni.

Samþykkt: 
  • 10.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13275


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Neysluvatnsgæði_jan2005_2.pdf526.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna