is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1327

Titill: 
  • Agakerfi í grunnskólum : könnun á agakerfum í fimm grunnskólum á Akureyri
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um leiðir til að halda uppi aga í grunnskólum. Nauðsynlegt er fyrir
    kennara að þekkja vel til aðferða sem má nota til að halda uppi aga því agastjórnun er
    eitt af þeim erfiðari verkum sem bíða þeirra í starfi. Í verkefninu eru kynnt nokkur
    sjónarmið um aga og agastjórnun og skýrt frá könnun sem lögð var fyrir í fimm
    grunnskólum á Akureyri. Markmið könnunarinnar var að athuga hvort skipulögð
    agakerfi (refsi- og/eða umbunarkerfi) væru notuð í skólunum, hvernig þessum kerfum
    væri háttað og varpa ljósi á viðhorf skólastjóra, kennara og nemenda til umbunar- og
    refsikerfa svo og annarra aðferða sem notaðar eru til að framfylgja skólareglum.
    Jafnframt var spurt hvort nemendur, kennarar eða skólastjórar hefðu hugmyndir að
    einhverju sem þeir teldu vænlegra til árangurs en þær aðferðir sem beitt er í dag.
    Þátttakendur könnunarinnar voru frá fimm skólum á Akureyri, skólastjórar, nemendur
    eins 7. bekkjar úr hverjum skólanna og umsjónarkennarar sömu bekkja. Alls tóku þátt
    í könnuninni fimm skólastjórar, fimm kennarar og 94 nemendur, þar af 43 stúlkur og
    51 drengur. Spurningalistar voru lagðir fyrir kennara og nemendur en tekin viðtöl við
    skólastjórana.
    Niðurstöður könnunarinnar sýna að skipulögð agakerfi í einhverri mynd eru á
    unglingastigi í öllum skólunum sem tóku þátt í könnuninni en í einum skólanum er
    kerfið einungis notað á mætingu en öðrum aðferðum beitt til að hafa áhrif á hegðun. Á
    yngri stigum eru samræmd skipulögð agakerfi í tveimur skólanna en sumir
    kennaranna nota sín eigin kerfi við agastjórnun ásamt fleiri aðferðum. Flestir
    skólastjórarnir og kennararnir reyndust hlynntir skipulögðum agakerfum og
    umbunarkerfi áttu meira fylgi að fagna en refsikerfi. Nemendur töldu líka að
    umbunarkerfi myndi hafa jákvæðari áhrif á hegðun þeirra en refsikerfi. Skólastjórar
    og kennarar voru frekar ánægðir með aðferðirnar sem notaðar eru við agastjórnun og
    um 41% nemenda var á sama máli, tæpur helmingur var hvorki ánægður né óánægður.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1327


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
agakerfi_heild.pdf999.61 kBLokaðurAgakerfi - heildPDF
agakerfi-e.pdf344.17 kBOpinnAgakerfi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
agakerfi-h.pdf86.83 kBOpinnAgakerfi - heimildaskráPDFSkoða/Opna
agakerfi-u.pdf67.26 kBOpinnAgakerfi - útdrátturPDFSkoða/Opna
Agakerfi í grunnskólum_fylgiskjöl.pdf2.42 MBLokaðurAgakerfi - fylgiskjölPDF