Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1329
Eins og nafn ritgerðarinnar ber með sér fjallar hún að mestu leyti um verkalýðshreyfinguna og stéttarfélög og hvaða vitneskju nemendur ættu að hafa í farteskinu þegar þeir stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaði. Unglingum sem eru í 10. bekk grunnskóla og hafa stundað unglingavinnu hjá sínu sveitarfélagi er flestum ókunnugt um hvað rétt þeir hafa á vinnumarkaði og hvaða skyldum þeir þurfa að gegna sem launamenn.
Í skólakerfinu er ekki nóg gert til að upplýsa nemendur um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Tenging námsefnis við veruleikann og atvinnulífið og umfjöllun um stéttarfélög í gegnum söguna, skipa of lítinn og oft á tíðum engan sess í því námsefni sem kennt er á unglingastigi grunnskólans.
Það er því aðkallandi að stéttarfélög / verkalýðshreyfingin í heild knýi á skólayfirvöld að koma á meiri kennslu um þessi mál, þannig að sú vitneskja nýtist nemendum þegar út á vinnumarkaðinn er komið.
Í þessari ritgerð er samsafn af upplýsingum um réttindi og skyldur á vinnumarkaði sem snýr aðallega að efstu bekkjum grunnskólans, einnig er komið inn á af hverju æskilegt er að fræðslu sé komið fyrir inni í skólakerfinu.
Leitast er við að svara því hvernig við getum gert nemendur að nýtum þjóðfélagsþegnum eins og Aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla segja til um. Einnig er í ritgerðinni spurningarlisti sem lagður var fyrir nokkra nemendur í 10. bekk grunnskóla og úrvinnslu úr honum.
Komið er inn á hvernig nokkrir fræðimenn fjalla um menntun í lýðræðislegu skólakerfi þar sem þeir fjallað um þegnskaparmenntun frá nokkrum sjónarhornum. Af hverju þarf að gera nemendur að nýtum þjóðfélagsþegnum og hvernig.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
verk.pdf | 486.58 kB | Lokaður | Verkalýðshr - heild | ||
Verkalýðshreyfingin_fylgiskjal.pdf | 270.27 kB | Lokaður | Verkalýðshr - fylgiskjöl | ||
verk-e.pdf | 275.76 kB | Opinn | Verkalýðshr - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
verk-h.pdf | 136.65 kB | Opinn | Verkalýðshr - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
verk-u.pdf | 73.84 kB | Opinn | Verkalýðshr - útdráttur | Skoða/Opna |