Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13304
Þessi ritgerð fjallar um möguleika á Hvanneyri til útináms á mismunandi skólastigum. Hvanneyrarstaður er skólaþorp þar sem nemendur blómstra í leikskóla, grunnskóla og háskóla. Markmið ritgerðarinnar er að koma auga á svæði jarðarinnar sem henta til útináms og ávinning samfélagsins á Hvanneyri af því að gera útinám sýnilegt.
Í upphafi var útinám skólanna þriggja á Hvanneyri skoðað; leikskólans, grunnskólans og háskólans. Höfundur kannaði frekar ítarlega hvað felst í hugtakinu útikennsla og skoðaði íslenska og erlenda hugmyndafræði fyrir hugtakið. Ýmsir sáttmálar sem Ísland á aðild að voru skoðaðir í því samhengi hvernig skólarnir geta framfylgt þeim stefnum betur með reglubundinni útikennslu. Því næst voru náttúrufarslegar forsendur kannaðar og landslagsgreiningar framkvæmdar á athugunarsvæðinu. Höfundur valdi þá leið að skipta greiningunni í þrjá megin hluta, náttúrufar, menningu og upplifun. Í ljósi þessara greininga, upplifunar höfundar af svæðinu ásamt rituðum heimildum og ekki síst viðtölum við stjórnendur, kennara og heimamenn, voru niðurstöður ritgerðarinnar fengnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Helga Kristín Hermannsdóttir_Útikennsla á Hvanneyri_BS_2011.pdf | 2.32 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |