is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13338

Titill: 
  • Ógreindur: á jaðrinum, án handleiðslu
Útgáfa: 
  • Október 2012
Útdráttur: 
  • Lítið sem ekkert er um rannsóknir á fólki sem endurtekið leitar lausna innan heilbrigðiskerfa vegna ógreinds heilsufarsvanda. Vísbendingar gefa þó til kynna að um sé að ræða nokkurn fjölda einstaklinga og að líf þeirra einkennist af jaðarstöðu. Markmið erindisins er að varpa ljósi á lífsreynslu þessa einstaklinga. Stuðst er við heildræna sýn heilsumannfræðinnar en hún skoðar líf einstaklinga í órjúfanlegu samhengi við umhverfi þeirra. Samtímis einkennist heilsu- mannfræðin af gagnrýnum, siðferðilegum sjónarmiðum og áherslu á félagslegt réttlæti. Tekin voru lífsöguleg viðtöl við átta þátttakendur sem höfðu verið án sjúkdómsgreiningar í að lágmarki fimm ár. Sex þeirra hafa fengið einhverja greiningu, t.d. astma, vefjagigt, gersveppaóþol eða sjálfsofnæmi, og tveir hafa enga greiningu fengið. Aðdragandi meðfylgjandi jaðarstöðu var skoðaður, sem og þær aðstæður sem höfðu áhrif á hana. Niðurstöður gefa til kynna að skortur sé á skipulögðum farvegi innan heilbrigðiskerfisins fyrir þennan hóp sjúklinga. „Líf án sjúkdómsgreiningar” virðist að miklu leyti snúast um líf án handleiðslu og stuðnings. Þó afgerandi sjúkdómsgreining sé mikilvæg fyrir bætta líðan er ekki síður mikilvægt að sjúklingurinn sé virkur í lækningaferlinu sem og að hann mæti umhyggjuríkri handleiðslu heilbrigðisstarfsfólks. Þátttakendur vilja heildstæða handleiðslu og leiðsögn sem þeir eiga rétt á sem sjúklingar en neikvæð menningarbundin túlkun á hugtökunum „sjúklingur“ og „sjúkdómur“, virðist hamla því að þátttakendur sæki þann rétt sinn.

Birtist í: 
  • Rannsóknir í félagsvísindum XIII: Félags- og mannvísindadeild
Samþykkt: 
  • 26.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13338


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
halldora_Palsdottir_Ogreindur a jadrinum.pdf571.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna